Benedikt Jónsson, formaður samninganefndar Íslands í fríverslunarviðræðum við Kína segir viðskipti þjóðanna hafa aukist gríðarlega á síðustu árum. Innflutningur íslenskra fyrirtækja frá Kína hefur tífaldast og útflutningur fimmfaldast síðasta áratug.
Að sögn Benedikts stóð upphaflega til að það yrði EFTA sem gerði fríverslunarsamninginn fyrir hönd aðildaríkjanna, Íslands, Noregs og Lichtenstein en að Kínverjar hafi fljótlega óskað eftir því að fara í tvíhliða viðræður.
Síðan hefur miðað vel í viðræðum Íslendinga og Kínverja en Norðmenn hafa aðeins átt einn fund sem snerist um gerð hagkvæmnismats, nokkuð sem Íslendingar luku við að gera fyrir nokkuð löngu síðan. Íslendingar virðast því vera að stinga Norðmenn af í kapphlaupinu um frjáls viðskipti við Kína.
Að sögn Benedikts er rætt tollaniðurfellingu eða að minnsta kosti lækkun tolla á bæði sjávarafurðum og iðnaðarvörum en jafnframt sé gert ráð fyrir að samið verði um markaðsaðgang fyrir þjónustugeirann í báðum löndum.
Benedikt segir enga stefnubreytingu hafa orðið í utanríkisráðuneytinu gagnvart samningaviðræðunum við Kínverja eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók við embætti utanríkisráðherra. Aðspurður um það hvort mannréttindarbrot Kínverja komi eitthvað inn á borð samninganefndanna segir Benedikt “Það eru staðlaðir skilmálar og gagnkvæmar skuldbindingar í öllum okkar milliríkjasamningum í dag þar sem kveðið er á um að aðilar skuli fylgja alþjóðlegum samningum um m.a. vernd mannréttinda og um að virða samþykktir alþjóða vinnumálasambandsins.“
