Miðvikudagur - 4.7 2007 - 23:15 - Ummæli ()

Bloggrúntur 040707: Stöð2 – Björn Bjarna – ESB og Afríka

Þeir bloggarar sem ekki láta sól og sumar hindra sig í því að uppfæra bloggsíður sínar, eru margir með hugann við þjóðmálin þennan daginn.

Benedikt Sigurðarson bloggar um orkugeirann og almannahagsmuni og er heldur á því að fara rólega í einkavæðingu orkufyrirtækjanna.

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri grænna spyr á sinni síðu hvort allt nýtt þurfi að vera „einka“ og leggur út af hugmyndum skólameistara MA um einkarekinn framhaldskóla.

Björn Bjarnason ver í færslu á heimasíðu sinni í kvöld þá aðferð sem hann notar við að svara blaða- og fréttamönnum.

Jón Axel Ólafsson vitnar í nafnlausar heimildir og segir stjórnarfund í 365 miðlum hafa verið bragðdaufan og ekki hafa leitt til niðurstöðu um framtíð fréttastofu Stöðvar 2.

Arna Schram fjallar um lausn Alans Johnstons og um öryggi blaðamanna á vettvangi.

Andrés Magnússon eyjubloggari fer af stað eftir frí og byrjar vel. Hann er hrifinn af viðtali við Benedikt Erlingsson leikara í Lesbókinni.

Stefán Pálsson fjallar um viðtal við formann Vinstri Grænna í Fréttablaðinu og bendir á að það sé fréttnæmt að Ingibjörg Sólrún segi stuðning Afríkuríkja við framboð Íslands vera því að þakka að við stöndum utan Evrópusambandsins.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar