Kötturinn Óskar veit hvenær dauðinn er á næsta leyti. Ef hann hjúfrar sig við rúm sjúklings á hjúkrunarheimilinu þar sem hann hefur búið síðan hann var kettlingur er sá sjúklingur venjulega dáinn innan fjögurra klukkutíma. Starfsfólk hjúkrunarheimilisins er farið að hringja í fjölskyldurnar þegar atferli kattarins gefur til kynna að dauðinn sé skammt undan.
Þetta hefur hann gert í 25 skipti og David Dosa, yfirlæknir á Steere House hjúkrunar- og endurhæfingarheimilinu í Providence í Rhode Island og dósent við Brown-háskóla, skrifar grein um hæfileika Óskars í nýjasta tölublað New England Journal of Medicine, eins virtasta læknablaðs í heimi. Helstu fréttastofur Bandaríkjanna segja frá Óskari í dag.
„Óskar gerir ekki mörg mistök, hann virðist skilja hvenær sjúklingarnir eru að fara að deyja,“ segir dr. Dosa. „Mörgum fjölskyldum sjúklinga er huggun í þessu. Þær kunna að meta að kötturinn veiti deyjandi ástvinum þeirra félagsskap.“
Dosa segir að Óskar taki þetta hlutverk sitt hátíðlega, „þetta er ekki köttur sem er vingjarnlegur við fólk,“ segir hann.
Óskari tekst betur en starfsfólki hjúkrunarheimilisins að spá fyrir um hvenær sjúklingarnir, sem margir þjást af Alzheimers eða Parkinsons hrörnunarsjúkdómum, eru að kveðja þennan heim. Dr. Joan Teno, sem er læknir á deildinni, segist snemma hafa sannfærst um hæfileika kattarins.
Læknarnir segja að flestir þeirra sem fá heimsókn frá Óskari séu of veikir til að veita honum athygli og því viti þeir ekki hvað návist hans boðar. Fjölskyldur sjúklinganna eru hins vegar þakklátar fyrir þá viðvörun sem Óskar veitir því að þannig gefst þeim tækifæri til að kveðja ástvini sína sem það fengi annars ekki.
Vísindamenn hafa ýmsar kenningar um ástæður þess að Óskar veit hvenær dauðinn er á næsta leyti og tala um að rannsaka þurfi það betur. Starfsfólk hjúkrunarheimilisins er hins vegar fyrst og fremst þakklátt fyrir þá þjónustu sem Óskar veitir þeim og fjölskyldum sjúklinganna.
—-
