Degi eftir andlát sænska kvikmyndajöfursins Ingmar Bergman berast fréttir af því að ítalski kvikmyndaleikstjórinn Michelangelo Antonioni sé allur, 94 ára að aldri. Hann er heimsþekktur fyrir kvikmyndir á borð við Blow-Up og L’Avventura.
Antonioni lést á heimili sínu í gærkvöldi, sama dag og Bergman, sem var 89 ára þegar hann lést.
Í myndum sínum lýsti Antonioni firringu nútímamannsins, lítið var um samtöl í myndum hans en að sama skapi mikið um langar tökur. Ásamt Federico Fellini umbreytti hann ítalskri kvikmyndagerð eftir seinni heimsstyrjöldina og varð hún leiðandi í Evrópu um og eftir miðja öldina.
Útför Antonionis verður gerð frá heimabæ hans Ferrara á Norður Ítalíu á fimmtudag.
