Þriðjudagur - 31.7 2007 - 14:46 - Ummæli ()

Ráðist á Eið Smára í miðborg Reykjavíkur – hrint og kýldur

gudjohnsen3.jpgEiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, varð fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur um helgina – honum var hrint og hann kýldur í andlitið. Hann slapp ómeiddur frá árásinni, ætlar ekki að kæra og var í dag á æfingum í með félögum sínum í Barcelona.

Samkvæmt heimildum Eyjunnar var Eiður Smári að koma úr þrítugsafmæli Sverris Þórs Sverrissonar, Sveppa, sem haldið var á skemmtistaðnum Dómó, á laugardagskvöldið þegar ráðist var á hann. Hann var með nokkrum félögum sínum þegar maður, sem hann þekkti ekki kallaði á hann og vildi spjalla við hann. Þegar Eiður svaraði ekki réðist maðurinn á hann og hrinti honum þannig að Eiður  féll í götuna.

Þegar Eiður Smári stóð upp kom félagi mannsins að og kýldi hann í andlitið. Félagar Eiðs Smára skökkuðu leikinn en sjálfur lét hann sig hverfa af staðnum. Eiður hlaut ekki teljandi meiðsli og hefur verið á tveimur æfingum með félögum sínum í Barcelona í dag.

Eggert Skúlason, talsmaður Eiðs Smára, staðfesti við Eyjuna í dag að Eiður hefði orðið fyrir árás í miðbænum aðfaranótt sunnudags og að hana hefði borið að með þessum hætti. Hann sagði að Eiður ætlaði sér ekki að kæra árásina.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar