eyjan.is

Föstudagur 10.08.2007 - 21:08 - Ummæli ()

Harðorð yfirlýsing: Lögmaður Smáís efast um faglega hæfni sýslufulltrúa – spyr hvort hann sé sjálfur með Sky?

411849a.jpgHróbjartur Jónatansson, hæstaréttarlögmaður, lögmaður Smáís, fer höfðum orðum um synjun fulltrúa sýslumannsins í Keflavík við lögbanni á sölu fyrirtækisins Skydigital.is í Keflavík að áskriftum að Sky-gervihnattasjónvarpsstöðinni. Í tölvubréfi sem Hróbjartur sendi Eyjunni í kvöld dregur hann faglega hæfni fulltrúans í efna og segir úrskurðurinn vekji þá spurningu hvort sýslumannsfulltrúínn sé sjálfur með Sky. Fulltrúinn hafi neitað að rökstyðja ákvörðun sína, sem sé undarlegt enda hafi hann haft í höndum ótvíræð gögn um lögbrot fyrirtækisins, m.a. í formi efnis af heimasíðu þess. Ekki þurfi að deila um að Skydigital selji áskriftir.

Hróbjartur er staddur erlendis en sendi Eyjunni svohljóðandi tölvuskeyti í framhaldi af frétt okkar um synjun sýslumannsembættisins í Keflavík við lögbanni á Skydigital.is:

„Vegna höfnunar kröfu um lögbanns á sölu SKY korta í Kelflavík…Það liggur fyrir að Skydigital.is í Keflavík selur áskrift að SKYsjónvarpsstöðinni í Bretlandi, það sést af heimasíðunni Skydigital.is og ekki þarf að deila um það…í gögnum lögbannsmálsins eru samningar 365 við rétthafa, gögn um áskriftarskilmála SKY, bréf frá yfirmanni öryggismála hjá SKY til gerðarþola um honum sé bannað að selja áskrift og tæki til að ná SKY á Íslandi, gögn um að Skydigital.is selji áskrift til íslendinga og yfirlýsing þeirra á heimasíðunni að aðeins sé löglegt að selja áskrfitina á Bretlandi og að þær reglur séu sniðgengnar til þess að bjóða íslendingum áskrfiftarkortin…. Þá liggur fyrir að lögbann var sett á í Reykjavík og sýslumaður Selfoss greip umsvifalaust til lögregluaðgerða gegn SKYKORT.COM sem stunda það sama og Skydigital.is. – það vekur sérstaka furðu að kollegar Árna H. Björnssonar í Reykjavík og Selfossi telja að nægjanleg grein hafi verið gerð fyrir því af hálfu gerðarbeiðanda að brotið sé á rétti gerðarbeiðanda en hann ekki…

Í lögbannsfyrirtökunni neitaði Árni að rökstyðja sína ákvörðun… Hann umlaði aðeins um hvort það væri ekki hægt að sætta þetta eða ná samkomulagi og það væri nú komið lögbann í Reykjavík og rannsókn í gangi á Selfossi…. Þegar þetta er haft í huga fer ekkert á milli mála að niðurstaða Árna H. Björnssonar sýsluftr. í Keflavík , sem er ÓRÖKSTUDD með öllu, er afar einkennileg enda hafði hann fleiri gögn um málið en hin fyrrnefndu embætti. Þau atriði sem koma upp í hugann eru, a) að Árni H. sé sjálfur með SKY, b) hann hafi ekki hæfni eða getu til þess að skilja lögfræðilegt samhengi hlutanna eða c) hafi ekki nennt að setja sig inn í málið.eða d) sé sérstaklega tengdur gerðarþola…Það er amk erfitt að átta sig á niðurstöðunni út frá lögfræðilegri aðferðarfræði enda enginn rökstuðningur, eins og áður sagði..Þessari órökstuddu ákvörðun verður skotið til héraðsdóms.Reykjaness án tafar

Virðingarfyllst

Hróbjartur Jónatansson hrl.“

—-

Sjá fyrri fréttir Eyjunnar um lögbannsmál Smáís vegna sölu á áskriftum að Sky hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is