eyjan.is

Föstudagur 10.08.2007 - 20:10 - Ummæli ()

Lögbanni á sölu áskrifta að Sky hafnað í Keflavík

skydigital.JPGFulltrúi sýslumanns í Keflavík hafnaði í dag ósk Smáís um lögbann við sölu fyrirtækisins Sky Digital Ísland í Keflavík á áskriftum að gervihnattarsjónvarpsútsendingum Sky og taldi skorta á að sannað hefði verið að fyrirtækið sölu áskrifta. Óúmdeilt er að fyrirtækið selur með löglegum hætti búnaðinn sem þarf til að ná útsendingum Sky en Smáís taldi að þar væri sala áskrifta einnig stunduð.

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur áður veitt slíkt lögbann gegn versluninni Eico og á Selfossi hefur verið gripið til ráðstafana gegn Skykort.com og forsvarsmaður þess fyrirtækis handtekinn og verið látinn sæta húsleit.

Eins og kom fram í frétt eyjunnar.is í gær eru milli 5.000 og 7.000 heimili með móttökubúnað fyrir Sky-sjónvarpsstöðvarnar og taka á móti sjónvarpsefni um gervihnött sem 365 og eftir atvikum RÚV og Skjár einn hafa tryggt sér einkarétt á.

Lögbannsmál vegna þessa hafa verið í gangi á vegum Smáís, samtaka eigenda höfundarréttar, gegn aðilum á Selfossi, Reykjavík og í Keflavík, sem selja búnað til að taka á móti útsendingum Sky og – samkvæmt því sem Smáís heldur fram – einnig áskriftir að Sky, sem brjóti gegn einkarétti íslenskra sjónvarpsstöðva.

sky.JPGFulltrúi sýslumannsins í Keflavík hafnaði kröfu Smáís í dag og taldi lagaskilyrði fyrir lögbanni ekki fyrir hendi. Friðjón Örn Friðjónsson hæstaréttarlögmaður sem gætti hagsmuna fyrirtækisins SkyDigital Íslands í Keflavík sagði í samtali við Eyjuna að lögbann sé bráðabirgðatryggingaúrræði. Samkvæmt lögum verði að gera strangar kröfur um sönnun til þess aðila sem krefst þess að lögbann sé sett á einhverja starfsemi annarra. Smáís hafi einfaldlega ekki tekist að sanna að SkyDigital Ísland selji áskriftir.

“Í þessu tilfelli þótti skorta á þessa sönnunarfærslu,” sagði Friðjón. “Það er ekki bara hægt að fullyrða að ólögleg starfsemi fari fram án sannana og fara fram á lögbann.“ Hann sagði að í slíkum tilfellum sé réttara að kæra til lögreglu fyrir brot á höfundarlögum eða fara í einkamál fyrir dómstólum fremur en að krefjast þess að starfsemi sé stöðvuð með lögbanni án þess að geta lagt fram sönnunargögn.

Sjá fleiri fréttir Eyjunnar um þetta mál hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is