Laugardagur - 11.8 2007 - 14:17 - Ummæli ()

Sýslufulltrúi í Keflavík: Er ekki með Sky og skil ekki þessi ummæli

skydigital.JPG„Ég er ekki með Sky og þekki ekki gerðarþola og ég skil ekki þessi ummæli,“ segir Árni H. Björnsson, sýslumannsfulltrúi í Keflavík, um þau ummæli sem Hróbjartur Jónatansson, lögmaður Smáís, lét falla eftir að Árni hafnaði lögbannsbeiðni Hróbjarts, fyrir hönd Samtaka myndrétthafa á Íslandi, gagnvart fyrirtækinu SkyDigital.is í

Keflavík. Smáís segir að fyrirtækið selji ólöglega áskriftir að Sky gervihnattasjónvarpi. Árni segist einfaldlega hafa hafnað beiðninni af því að hann taldi að lögbannsbeiðni Hróbjarts uppfyllti ekki skilyrði laga eins og hún var fram sett og eins og andmælum lögmanns SkyDigital var háttað.

sky.JPG“ Ég er að reyna að vinna mitt starf,“ segir Árni í samtali við Eyjuna. „Það er stórt mál að fara út í lögbann og það þarf að vera allt á hreinu. Það eru ákveðin lagaskilyrði sem þarf að uppfylla og sem ég taldi að væru ekki uppfyllt. En hvort ég er lélegur lögfræðingur kann að vera álitamál en ég stúderaði þetta mál gaumgæfilega og lagði ríka áherslu á að aðilar kæmu öllum sínum sjónarmiðum að,“ sagði hann.

Árni sagði að úrskurðurinn væri ekki rökstuddur að öðru leyti en því að sagt væri að lögbannskrafan næði ekki fram að ganga. Það væri vanalegt og byggt á því að lagaskilyrði fyrir jafnalvarlegu úrræði og lögbanni hefðu ekki verið talin til staðar. Hann sagði að hægt væri að skjóta synjun hans við lögbanni til dómstóla. Eins væri mögulegt að Hróbjartur legði fram aðra lögbannsbeiðni, sem hægt yrði að taka afstöðu til en sú sem hann hafnaði í gær hefði ekki uppfyllt lagaskiolyrði til löbanns að sínu mati.

Árni segir að hin hörðu ummæli Hróbjarts muni ekki hafa eftirmál af sinni hálfu. „Þetta sýnir mikið keppnisskap og pirring en þetta eru prýðismenn og sjálfsagt í mikilli baráttu fyrir sína skjólstæðinga.“

Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður, sem er lögmaður Eico, eins þriggja fyrirtækja sem Smáís hefur krafist lögbanns gegn segir að ummæli Hróbjarts um Árna H. Björnsson séu óviðurkvæmilegt. „Mér þykir sorglegt að lögmaður láti hafa eftir sér svona óviðurkvæmileg ummæli um embættismenn,“ segir Jón.

—-

Frétt Eyjunnar um ummæli Hróbjarts hér.

Aðrar fréttir Eyjunnar um lögbannsaðgerðir Smáís hér.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar