eyjan.is

Mánudagur 20.08.2007 - 15:22 - Ummæli ()

Sveitarfélög greiða 323 milljónir í gjöld fyrir urðun og endurvinnslu dagblaða

dagbl1.jpgSveitarfélögin í landinu greiddu um 323,6 milljónir króna fyrir að láta urða og endurvinna dagblaðappír og auglýsingapóst sem borinn var inn á heimilin í landinu í fyrra. Þetta er aðeins kostnaður þeirra við að afhenda pappírinn til urðunar eða endurvinnslu. Eyjan hefur gert þessa útreikninga á grundvelli forsendna frá Reykjavíkurborg og úr fréttabréfi Fagráðs um endurnýtingu og úrgang. Inni í tölunni er ekki sá kostnaður sem til fellur við að hirða pappírinn – ýmist í sorptunnum heimilanna eða við endurvinnslugáma og -stöðvar.

176 kíló af dagblaða- og auglýsingapappír bárust inn á meðalheimili í landinu á síðasta ári og hafði magnið aukist um 76% frá árinu 2003 en 100 kíló bárust inn á meðalheimilið það árið.

19,6 þúsund tonn af blaðapappír – dagblöðum og auglýsingablöðum – voru borin út til landsmanna á árinu 2006. Þar af voru um 8.428 tonn af Fréttablaðinu, 4.275 tonn af Morgunblaðinu og 3.352 tonn af Blaðinu. Einnig 3.617 tonn af bæjarblöðum og auglýsingapósti. Þetta svarar til alls 176 kílóa af blöðum á hvert heimili – þar af um 38 kg af Morgunblaðinu, sem er keypt og greitt fyrir, en um 138 kg af fríblöðum og auglýsingapósti.

Að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar, fer um 40% af heildarmagni dagblaðapappírs til endurvinnslu í gegnum grenndarstöðvar og endurvinnslugáma í Reykjavík en 60% henda borgarbúar í svörtu sorptunnuna með öðru heimilissorpi.

Borgin þarf að greiða 8,48 krónur í móttökugjald fyrir hvert kíló af sorpi sem hún afhendir Sorpu til urðunar en greiddar eru 2,54 krónur fyrir hvert kíló af pappír sem Sorpa tekur á móti til endurvinnslu úr hverfastöðvum, söfnunargámum og nýju bláu tunnunum sem borgin býður borgarbúum að greiða 7,400 krónur á ári fyrir að fá á heimili sín undir pappírinn. 7.400 króna ársgjaldið á að mæta kostnaði borgarinnar af sorphirðunni og greiðslu móttökugjalds á endurvinnslustöðvum.

Hefði allur dagblaða- og auglýsingapappír skilað sér frá heimilunum til endurvinnslu á síðasta ári hefðu sveitarfélögin þurft að greiða 203 milljóna króna móttökugjald fyrir að láta endurvinna pappírinn. Færi allur pappírinn til urðunar væru móttökugjöldin síðasta ár 404 milljónir króna.

Miðað er við að hlutfall þess sem skilar sér til endurvinnslu sé 40% en að 60% fari til urðunar, líkt og raunin er í Reykjavík. Þannig er fengin út talan 323,6 milljónir króna sem sá kostnaður sem sveitarfélögin öll greiða vegna urðunar og endurvinnslu á dagblaða- og auglýsingapappír á síðasta ári.

Þá hefur ekki verið tekið tillits til þess kostnaðar sem sveitarfélögin hafa af því að hirða sorpið og pappírinn og koma honum í móttökustöðvar Sorpu. Ef miðað er við 100.000 heimili í landinu er kostnaðurinn á hvert þeirra 3.236 krónur, eða rúmlega eins mánaðar áskrift að dagblaði.

Úrvinnslugjald fæst ekki lagt á
Guðmundur B. Friðriksson segir að sveitarfélögin hafa lengi barist fyrir því að lagt verði úrvinnslugjald á pappír til þess að standa undir þessum kostnaði. Stjórn úrvinnslusjóðs hefur ávallt hafnað slíkum tillögum sveitarfélaganna, að sögn Guðmundar, og kröfur þeirra hafa ekki heldur fengið hljómgrunn hjá umhverfisráðherra. Sveitarfélögin hafa einn fulltrúa í stjórn Úrvinnslusjóðs en atvinnulífið fjóra.

Guðmundur segir að úrvinnslugjald sé besta verkfærið sem sveitarfélögin hafi til þess að draga úr úrgangsmyndun – endurvinnsla og urðun séu mun síðri kostir. Það sé líka í anda meginreglna umhverfisréttarins að leggja gjöld á þá sem menga í stað þess að velta kostnaðinum yfir á umhverfið og samfélagið allt. Ríkið hafi hins vegar eitt í hendi sér að leggja á úrvinnslugjald og þar hafi þessi sjónarmið ekki mætt skilningi hvað varðar pappírinn.
—-

Upplýsingar um magn dagblaðapappírs á síðasta ári eru fengnar af fenur.is.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is