Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og formaður Umhverfisnefndar borgarinnar, útilokar ekki að í framtíðini verði lagt gjald á þau fyrirtæki sem dreifa fríblöðum og auglýsingakostnaði til þess að standa undir kostnaði við endurvinnslu og urðun á þeim mikla óumbeðna blaðapappír sem borinn er inn á heimili í borginni.
Sveitarfélögin í landinu greiða nú um 320 milljónir króna á ári í móttökugjöld á endurvinnslu- og urðunarstöðum fyrir móttöku á dagblaða- og auglýsingapappír, auk þess kostnaðar sem þau bera við að láta hirða sorpið og koma því í urðun eða endurvinnslu.
Gísli Marteinn segir að Bláa tunnan sé tilraun borgarinnar til að bæta flokkun og endurvinnslu á dagblaðapappír en nú skila um 40% pappírsins sér til endurvinnslu en um 60% eru urðuð með heimilissorpi. Viðtökur hafi verið góðar og 300 heimili voru búin að panta Bláa tunnu áður en þær voru kynntar almenningi.
Gísli segist sjá fyrir sér að eftir 1-2 ár leggi menn mat á árangurinn af þessari tilraun og hvort tilefni sé til annarra aðgerða.
—-
