Hljóðupptaka er komin fram af handtöku bandarísks öldungardeildarþingmanns fyrir ósiðsamlegt athæfi á salerni flugvallarins í Minnepolis-St. Paul í sumar. Þingmaðurinn, Larry Craig, hefur þegar sagt af sér nefndarstörfum fyrir Repúblíkana í þinginu og sætir miklum þrýstingi samflokksmanna sinna að segja af sér. Talsmaður hans neitaði í dag að hann ætlaði að hætta á þingi.
Á upptökunni heyrast orðaskipti þingmannsins og lögreglumannsins sem handtók hann fyrir að reyna við sig kynferðislega, með því að renna fæti sínum undir skilrúmið, þar sem þeir sátu hlið við hlið á salerninu, og ýta við fæti lögreglumannsins.
„Þú sagðir að fæturnir á okkur hefðu rekist saman. Ég held þeir hafi gert það,“ heyrist Craig segja. „Það næsta sem ég veit er að það birtist spjald undir skilrúminu sem á stendur: Lögreglan.“
Craig segist ekki vera samkynhneigður. „Ég sækist ekki eftir athöfnum á salernum.“ Lögreglumaðurinn segist hafa tekið þó nokuð marga fyrir svipaða hegðun og þingmaðurinn ylli sér vonbrigðum. „Hérna siturðu og lýgur að lögreglumanni… Fólk kýs þig. Ótrúlegt.“
Eða neðar á þessari fréttasíðu MSNBC.
