Fréttastofa Ríkisútvarpsins er orðin veffréttastofa. Frá og með deginum í gær skrifa fréttamenn Útvarps fréttir sínar jafnóðum inn á ruv.is.
Í samtali Eyjunnar við Óðin Jónsson, fréttastjóra RÚV, kom fram að breytingunni fylgi breyting á vaktafyrirkomulagi fréttastofunnar. Í stað þess að tveir starfsmenn séu í því að uppfæra vefinn og flytja þangað fréttir frá fréttastofum Útvarps og sjónvarps skrifa fréttamenn Útvarpsins, sem ganga vaktir allan sólarhringinn, nú beint inn á vefinn. Óðinn segir að breytingin muni leiða til þess að ruv.is verði uppfærður mun örar en hingað til.
