Engar beinar hótanir í þetta skiptið. Myndbandið virðist vera frá því í sumar. Bin Laden talar um að Bandaríkjamenn hafi kosið Demókrata til valda sem hafi þó ekki gert neitt til að stöðva stríðið í Írak heldur samþykkt tugmilljarða fjárstuðning til að halda drápunum áfram. Mestu mistökin hafi verið að refsa ekki þeim sem hófu stríðið, þar á meðal Rumsfeld, fyrrum varnarmálaráðherra. Bin Laden talar vítt og breitt í um hálftíma á myndbandinu og fjallar m.a. um Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, Noam Chomsky, Richard Perle, loftslagsmálin, skattamál og gagnsleysi lýðræðis.
