Fimmtudagur - 27.9 2007 - 10:05 - Ummæli ()

Íslendingur handtekinn á Indlandi fyrir peningaþvætti – 4ra ára flótti á enda

wathne.jpgGunnar Stefán Möller Wathne var handtekinn á Indira Gandhi alþjóðaflugvellinum í Delhi á Indlandi á föstudaginn. Gunnar er Íslendingur og hefur verið eftirlýstur í Bandaríkjunum í a.m.k. fjögur ár fyrir peningaþvætti í tengslum við eiturlyfjasölu, að þvi er segir á vef indverska blaðsins Indian Express.

Handtökuskipun var gefin út á hendur Gunnari 15. september 2005 í Kaliforníu. Hann er 37 ára og hefur verið búsettur í Bandaríkjunum. Hann var upphaflega ákærður í Kansas 1. apríl 2003 þegar réttað var í máli William nokkurs Pikard fyrir framleiðslu og sölu á LSD. Gunnar var ákærður fryir að hafa þvegið allt að þremur milljónum dollara af söluhagnaðinum með því að fjárfesta peningana fyrir Pikard í Rússlandi.

wathne2.JPGAðferðin sem Pikard notaði til að nálgast peningana á ný er athyglisverð. Pikard mun hafa fengið stöðu við rannsóknir við Kaliforníuháskóla í Los Angeles, UCLA. Hann aflaði styrkja til rannsóknanna með aðstoð kollega síns við skólann, Viatchelav Kolesnikov. Þessir peningar komu hins vegar frá Gunnari eftir að hafa verið þvættaðir í Rússlandi – og voru í raun upprunalegur afrakstur LSD sölunnar.

Samkvæmt því sem segir á indverska fréttavefnum fékk Kolesnikov peninga frá fyrirtækjum Gunnars í Eistlandi og Rússlandi á árunum 1998 til 2005.

Gunnar á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum

Við handtökuna í Dehli er hann sagður hafa verið með handtösku, farsíma, greiðslukort, Rolex úr, tvö ökuskírteini og tvö stúdentaskírteini.

Hann hefur farið fram á að vera látinn laus gegn tryggingu. Sú krafa verður tekin fyrir í rétti á morgun.

—-

Sjá hér.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar