Laugardagur - 20.10 2007 - 16:32 - Ummæli ()

„Eitthvað gruggugt“ við val knattspyrnukonu ársins

_margret_lara.jpgElísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Valsstúlkna sagði í viðtali við RÚV í dag að svo virðist sem „eitthvað gruggugt“ hafi átt sér stað við val á knattspyrnukonu ársins í lokahófi KSÍ í gærkvöldi.

Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR varð fyrir valinu.

Sögusagnir eru um SMS-sendingar sem hafi gengið milli knattspyrnukvenna um að kjósa ekki Margréti Láru Viðarsdóttur, sem skoraði 38 mörk í deildinni í sumar í 16 leikjum og bætti eigið markamet.

Elísabet sagði að það væri auðvitað aldrei að vita hvað hæft væri í sögusögnum um að leikmenn annarra liða hafi í nokkrar vikur fyrir valið talað sig saman um að velja ekki Margréti Láru. „En hafi þetta átt sér stað, þá er það rosalega döpur ákvörðn hjá þeim sem átt hafa hlut að máli.“

Bloggað er um þetta víða, m.a. hjá Eyjubloggurum hér og hér

Og Ómar Ragnarsson er með enn einn vinkil.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar