Simply Red ætla að hætta að spila saman árið 2009, eftir að hafa spilað saman fjórðung úr öld. Þetta er haft eftir söngvaranum Mick Hucknall.
Huchall, sem er 47 ára gamall, segir að plata hljómsveitarinnar Stay, sem kom út í mars, verði jafnframt síðasta plata hljómsveitarinnar.
„Ég hef ákveðið að 25 ár séu nóg,“ segir söngvarinn „og að tónleikaferðin sem hljómsveitin er á næstu tvö árin verði svanasöngurinn.“
Söngvarinn segist ætla að einbeita sér að sóló-ferlinum, og hefur einmitt nýlokið við eigin plötu, sem hann tileinkar blúsaranum Bobby Bland. Stay var þriðja plata hljómsveitarinnar undir nafninu simplyred.com og komst í fjórða sæti vinsældalista í Bretlandi.
