Karlmenn forheimskast við að horfa á myndir af „blondínum“
Könnun sem var gerð við X-Nanterre-háskóla í París leiðir í ljós að karlmenn forheimskast þegar þeir horfa á ljóshærðar konur. Þessar niðurstöður voru birtar í ekki ómerkara dagblaði en The Times, en DN.se segir frá þessu á vefsíðu sinni.
Í könnuninni voru karlkyns þátttakendur látnir horfa á myndir af allskonar konum og voru svo látnir taka próf í almennum fræðum á eftir. Mennirnir sem höfðu horft á myndir af ljóshærðu konunum fengu áberandi færri stig í prófinu. Vísindamennirnir skýra þetta með því að karlmenn tengi ljóshærðar konur steríótýpum og ómeðvitað verði væntingar þeirra öðruvísi.
„Þetta sannar að fólk sem er nálægt „steríótýpum“ fer ósjálfrátt að haga sér eins og þær,“ segir Thierry Meyer, einn vísindamannanna. „Það er langt síðan rannsóknir sýndu að hegðun fólks getur farið eftir því hverja það umgengst, dæmi um þetta er hvernig fólk fer að tala hægar nálægt eldra fólki.“
Það má því leiða að því líkum að menn hafi orðið nautheimskir í návist Marilyn Monroe.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
