Fimmtudagur - 22.11 2007 - 09:23 - Ummæli ()

Þrjár tegundur af köngulóm hafa numið land

77471629.jpgÞrjár tegundir af köngulóm hafa numið land á Íslandi undanfarin ár, allt „alvöru köngulær, mun stærri en við eigum að venjast,“ en meinlausar, segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur í samtali við Fréttablaðið í dag.

Tegundirnar halda sig fyrst og fremst inni í lagerum og slíku húsnæði en hafa ekkki fundist í híbýlum manna, enn sem komið er. Erling segir köngulær þola að svelta vikum saman og þótt þær finni sér ekkert æti allan desember þoli þær það alveg.

Tvær af tegundunum eru náskyldar íslenskri húsakönguló en tvöfalt stærri „lappalangar og frekar skelfingu valdandi fyrir marga þó að þetta séu saklaus dýr. Þessar tegundir eru búkminni en lappameiri og hraðskreiðari en köngulær sem eru úti,“ segir hann. Þriðja tegundin, leggjakönguló, er með lítinn búk en afar langa og granna fætur. Hún er algeng í vöruskemmum og vöruhúsum erlendis. „Það fer lítið fyrir þessum köngulóm því þær eru svo grannar en ég hef grun um að þessi könguló sé ekki bara að guða á dyrnar heldur sé hún komin inn fyrir,“ segir Erling.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar