Fimmtudagur - 29.11 2007 - 00:03 - Ummæli ()

Ný PISA rannsókn: Ísland í 27. sæti af 57. í raunvísindaþekkingu 15 ára

Ísland er í 27. sæti af 57. þjóðum í nýrri PISA-rannsókn á þekkingu 15 ára barna á raunvísindum. Niðurstöðurnar verða ekki birtar formlega fyrr en 4. desember en spænskt tímarit um menntamál hefur komist yfir niðurstöðurnar og er sagt frá þeim á vef Der Spiegel.

Ísland var í 21. sæti þegar könnunin var síðast gerð árið 2003 en þá tóku einungis 40 þjóðir þátt í mælingunni. Ísland fellur um eitt sæti ef einungis er litið til frammistöðu þeirra fjörutíu þjóða þar sem fyrir liggur samanburður við árangur ársins 2003. Í ár fékk Ísland 491 stig en 495 stig árið 2003.

Finnar eru í efsta sæti þessa lista, líkt og síðast, Hong Kong er í 2. sæti Kanada í því 3ja, Tævan í 4. og Eistland í 5.

Það eru því frændþjóðirnar Finnar og Eistar sem skara fram úr öðrum Evrópuþjóðum í þekkingu 15 ára barna á raunvísindum. Tvö kínverskumælandi samfélög, Hong Kong og Tævan, skipa 2. og 4. sætið

Holland og Lichtenstein eru í 9. og 10. sæti en Japan, Nýja-Sjáland og Ástralía eru í 6.-8. sætunum.

Myndin hér að neðan er af efsta hluta töflunnar sem birtist á vef Der Spiegel.

Spiegel birtir einnig niðurstöður könnunar, sem kallast Iglu, þar sem fjallað er um lesskilning og félagslega stöðu, þar er Ísland neðan við miðjan hóp 40 þjóða en er ofarlega á lista yfir þær þjóðir þar sem mestur munur er á frammistöðu barna eftir því hvort foreldrar þeirra eru af erlendum uppruna eða ekki. Nánar hér.

pisa.png


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar