eyjan.is

Viðskipti Mánudagur 17.12.2007 - 23:26 - Ummæli ()

Fölsuð bankaábyrgð í útboði Ríkiskaupa?

73513207.jpgÁ síðunni Orðið á götunni hér á Eyjunni segir að svissneska fyrirtækið Amitelo AG, sem átti lægsta tilboðið í útboði vegna síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á á Íslandi í október, hafi skilað inn falsaðri bankaábyrgð og sú sé ástæða þess að ekki var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli lægsta tilboðs heldur var samið við Vodafone.

Amitelo var talið hæft til þátttöku í útboðinu en þýskir fjölmiðlar hafa fjallað um að rekstur þess sé vafasamur. Í sumar fékk fyrirtækið einnig tíðniheimild fyrir uppbyggingu og rekstri farsímanets hér á landi til 10 ára frá Póst- og fjarskiptastofnun. Sjá nánar á Orðinu á götunni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is