Helgi Seljan vill ekki að tölva Þjóðskrár velji dóttur hans nafn
Helgi Seljan, sjónvarpsmaður, ætlar að leita til Umboðsmanns Alþingis vegna þess að þjóðskrá neitar að skrá nafn nýfæddrar dóttur hans þar sem það er tveimur bókstöfum of langt.
„Sem sagt: Þegar dóttir mín fer í leikskóla, skóla, framhaldsskóla og þaðan í Háskóla mun hún ávalt vera skráð í bækur undir því nafni sem tölva Hagstofunnar valdi henni,“ segir Helgi sem fjallar um málið í færslu á lokaðri heimasíðu Indíönu Karítasar Seljan Helgadóttur, sem er um það bil mánaðargömul og heitir eftir ömmum sínum og er með kenninafn föðurættarinnar, auk föðurnafnsins. Hann telur að 100-200 foreldrar hafi látið undan þrýstingi og breytt nafni barna eingöngu vegna þess að það hentaði ekki tölvukerfi Þjóðskrárinnar.
Þegar Helgi og Katrín Rut Bessadóttir, sambýliskona hans, sendu Þjóðskrá upplýsingar um nafnið eins og lög gera ráð fyrir fengu þau viðbrögð að nafnið fengist ekki skráð af því að það væri 34 stafir að lengd en tölvukerfi Þjóðskrárinnar ræður aðeins við nöfn sem eru 32 stafir að lengd. Þau buðust til að laga málið með því að skrá aðeins nafnið Indíana Karítas Seljan. „Það dugði hins vegar ekki, enda hentaði Þjóðskrá ekki að foreldrar nýttu frelsi sitt til styttinga nema samkvæmt forskrift Þjóðskrárinnar,“ segir Helgi. „Við máttum þannig samkvæmt hinu skilyrta frelsi Þjóðskrár til að ráða, sleppa fyrsta nafninu alveg, eða breyta öðru hverju hinu á þá leið að einungis fyrsti stafurinn stæði eftir. Indíana Karítas Seljan Helgadóttir yrði því Karítas Seljan Helgadóttir, Indíana K. Seljan Helgadóttir eða Indíana Karítas S. Helgadóttir. Jesús Kristur Jósefsson Maríuson, hefði passað betur á rullu Ágústusarmanna sem Jesú K J Maríuson. Að mati Þjóðskrár.“
„Eftir að hafa skoðað málið nánar höfum við komist að því að líkast til hefur þessi litla tölva þarna niðri í Þjóðskrá náð nokkurs konar löggjafarvaldi í samfélaginu,“ segir Helgi. „Hún lifir orðið sjálfstæðu lífi og aðlagar samfélagið að sér. Svolítið eins og keisari með hrakandi sjón sem sem lætur færa allta konungsríkið nær sér um tvö skref eftir því sem sjónin daprast. Það er því skylda mín sem borgari í þessu landi að segja söguna af tölvunni í Borgartúni sem við fjölskyldan höfum nú ákveðið að lýsa stríði á hendur.“
Helgi sagðist í samtali við Eyjuna vera að undirbúa að leita til Umboðsmanns Alþingis vegna málsins. Færslu hans um málið má lesa í heild hér á Eyjunni. (tengillinn var bilaður en er nú kominn í lag.)
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
