Háskólinn í Reykjavík mun ráða fólk í um fjörutíu ný akademísk störf á næstu misserum. Hópur sérfræðinga frá MIT, Tækniháskóla Massachusettes í Bandaríkjunum, hefur að undanförnu unnið að þróun og skipulagningu meistaranáms í tækni- og verkfræði ásamt starfsmönnum skólans. Þá er í undirbúningi samstarf Viðskiptadeildar HR og London Business School um uppbyggingu á framhaldsnámi í deildinni. Einnig mun alþjóðlegt ráðgjafaráð fræðimanna og stjórnenda úr sjö erlendum háskólum starfa við hlið nýs háskólaráðs sem tekur til starfa í febrúar.
„Markviss uppygging mannauðs HR og sterk tengsl við erlendar menntastofnanir og íslenskt atvinnulíf örvar rannsóknarvirkni og nýsköpun í kennslu,“ segir í frétt frá HR. „Þessi uppbygging ásamt aðstöðu á heimsmælikvarða mun koma HR í fremstu röð háskóla í Evrópu og skapa Reykjavík sess sem alþjóðleg háskólaborg innan fárra ára.“
Byggingarframkvæmdir eru hafnar við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við rætur Öskjuhlíðar. Byggingin verður um 40000 fermetrar og ein sú stærsta í Reykjavík. Í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík segir að hún sé „hönnuð með það að leiðarljósi að bjóða upp á aðstöðu á heimsmælikvarða fyrir nemendur, kennara og vísindamenn. Skólinn verður einn best búni háskóli í Evrópu og mun nýja húsið gjörbylta aðstöðu til kennslu og vísindastarfa hér á landi.“ Fyrsti hluti byggingarinnar verður tilbúinn haustið 2009 og hefst kennsla þar í ágúst það ár. Öll starfsemi HR verður sameinuð í nýja húsinu á árinu 2010.
Ráðning í rúmlega 40 nýjar, akademískar stöður við Háskólann í Reykjavík er liður í uppbyggingu á mannauði og starfsemi skólans, sem fram fer samhliða byggingarframkvæmdunum. Fyrir starfa um 500 manns við skólann, þar á meðal fyrrverandi starfsmenn fyrirtækja og stofnana á borð við Microsoft, NASA og Alþjóða heilbrigðisstofnunina WHO (World Health Organisation). „Markmið HR er að vera alþjóðlegur háskóli í hópi framsæknustu skóla Evrópu,“ segir í frétt frá skólanum. „Þróunarsjóður HR sem stofnaður var í tengslum við hutafjáraukningu félagsins á síðasta ári mun styðja við þessa uppbyggingu.“
