Mánudagur - 4.2 2008 - 08:29 - Ummæli ()

Starfsmenn Marel fá hluta launa í evrum ef þeir óska

marel.jpgMarel mun 15. mars næstkomandi byrja að borga starfsmönnum sínum evrutengd laun. Það mun vera í samræmi við rammasamkomulag sem var gert við trúnaðarmannaráð fyrirtækisins. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Starfsmenn sem hafa starfað hjá fyrirtækinu í sex mánuði geta óskað eftir því að fá 10-40% fastra launa í evrum. en fyrirtækið er skuldbundið til að bregðast við því innan fjörutíu daga. Samningar verða endurskoðaðir árlega.

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Gunnar Haraldsson, segir mörg álitaefni koma upp þó svo að evrutengd laun geti verið athyglisverð þróun.

Orðrétt segir hann í Fréttablaðinu: „Ákveðin evruvæðing er greinilega í gangi hjá sumum
fyrirtækjum. Hvernig spilar þetta inn í kjarasamninga í framtíðinni? Verða menn að taka
tillit til þessa við gerð kjarasamninga? Munu aðrir krefjast þess sama? Tíminn einn leiðir
þetta í ljós. Mér finnst líka umhugsunarvert hvort tveir ólíkir hópar launafólks eru að
myndast í landinu, einn sem fær greitt í erlendum gjaldmiðli og annar hópur sem fær greitt í íslenskum krónum.“

Forstjóri Marels, Sigsteinn Grétarsson, segir launin evrutengd þar sem íslenskir bankar gefi ekki kost á því að greiða í evrum. Hann vonar að svo verði í framtíðinni.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar