„Auðvitað getur hæstvist Alþingi ekki staðið undir því til lengdar að láta misvitra túlkunarmenn velja það og hafna sem þingmenn eru að fjalla um,“ sagði Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðu á Alþingi í gær þar sem hann lýsti þeirri skoðun að Alþingi ætti sjálft að stunda sjónvarpsdagskrárgerð með fréttum og umræðum um þingstörfin.
Fréttablaðið hefur eftir Árna að þau vinnubrögð fjölmiðlamanna að velja hvað birt er úr ræðum þingmanna skekki málflutning og kyningu frá Alþingi, auk þess sem þau skekki dómgreind og rugli fólk.
„Ég held að það væri mjög spennandi að hugsa þessa leið og taka svolítið völdin af sjálfskipuðum pistlahöfundum sem eru að leika sér með fjöreggið á markan hátt við meðferð mála eins og þeim sýnist en ekki á forsendum þeirra sem koma með þau og kynna þau,“ sagði Árni en til umræðu var tillaga um að útvarpa frá fundum Alþingis.
146
98