Íþróttaálfurinn Sportacus verður einkennismerki nýs átaks breska Íhaldsflokksins gegn offitu barna, sem hleypt verður af stokkunum á fimmtudaginn. Þetta kemur fram í Daily Telegraph í dag.
Það var sjálfur David Cameron, formaður flokksins, sem bauð Magnúsi Scheving Latabæjarstjóra að fara fyrir átakinu.
Talsmaður Íhaldsflokksins segir Magnús hafa náð góðum árangri í að draga úr offitu á íslandi. „Þó að hann sé fyndinn þá er boðskapurinn alvarlegur.“
Haft er eftir Dr Colin Wayne, formanni National Obesity Forum, samtaka sem berjastgegn offitu í Brelandi, að hann hafi hrifist af Sportacusi, þegar hann kom labbandi inn á sviðið á höndunum til að ávarpa ráðstefnu samtakanna í október sl. „Stjórnmálaflokkar verða að reyna ýmsar aðferðir í baráttunni. Hann hefur skilað frábærum árangri og ég fagna þessu.“
Í frétt Telegraph er haft eftir Cameron, að fullorðnir verði að gera meira af því að siða til annarra manna börn þegar þau sýndu óþekkt á almannafæri. Fólk leiddi það allt of oft fram hjá sér þegar börn væru henda frá sér rusli eða krota á veggi. Það óttaðist viðbrögðin, aðfinnslur og jafnvel málsókn.
