Þriðjudagur - 5.2 2008 - 09:56 - Ummæli ()

Tarantula könguló af stærstu gerð færð á lögreglustöðina

tarantula.jpgLögreglan í Reykjanesbæ tók í gærkvöldi í sína vörslu Tarantulu könguló af stærstu gerð.

Köngulóin fannst við húsleit í bænum ásamt þremur grömmum af meintu hassi.

Í tilkynningu lögreglunnar segir að hún hafi, ásamt hassinu, verið „færð á lögreglustöðina í örugga geymslu.“

„Ekki er vitað um uppruna Tarantulunnar né hvernig komið var með hana til landssins en eigandinn hafði hana sem gæludýr á heimili sínu í glerbúri og fóðraði hana á músum,“ segir í tilkynningunni.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar