Reykingamenn lifa skemur og kosta ríkið minni peninga en þeir sem ekki reykja. Sama á við um þá sem eru of þungir, segir í nýlegri, hollenskri rannsókn.
„Þetta voru nokkuð óvæntar niðurstöður,“ segir Pieter van Baal, hagfræðingur hjá hollenska heilbrigðiskerfinu, sem stjórnaði rannsóknunum.
Í könnuninni voru borin saman útgjöld ríkisins vegna þriggja hópa: Reykingamanna, þeirra sem eru of þungir og í þriðja lagi heilbrigðra, þ.e. þeirra sem eru í góðu líkamlegu formi og reykja ekki.
Kostnaður við sjúkdóma eins og lungnakrabba og sykursýki er hærri vegna þeirra sem reykja og eru of þungir en hinna heilbrigðu. En af því reykingamenn og átvögl lifa skemur kosta þeir ríkið þegar upp er staðið mun minna en hinir, það er um það bil 1,7 -1,9 milljónir í lífi sínu meðan hinir heilbrigðu kosta ríkiskassann 2,1 milljón.
„Þetta er eins og að fá fötu af köldu vatni í hausinn,“ segir Patrick Basham, prófessor í heilbrigðispólitík við Johns Hopkins-háskóla. „Niðurstöðurnar eru ekki gleðilegar fyrir stjórnmálamenn sem vilja stjórna matar- og reykingavenjum borgaranna með það fyrir augum að minnka kostnað til heilbrigðismála.“
Hann bendir einnig á að áætlaður kostnaður stjórnvalda vegna þeirra sem reykja og borða óheilsusamlega séu meira og minna ágiskanir.
Frá þessu segir í 180-grader en í New York Times í dag er einmitt frétt um að bresk tryggingafyrirtæki bjóði reykingamönnum nú hærri greiðslur þar sem þeir muni hvort eð er ekki lifa nógu lengi til að fá allan lífeyrinn sinn greiddan.
Tryggingafyrirtækið Partneship er til dæmis að bjóða lægri tryggingar þeim sem eru komnir yfir fimmtugt og hafa reykt að minnsta kosti tíu sígarettur á dag í tíu ár.
Partnership segir reykingamenn sæta ósanngjarnri meðferð hjá öðrum tryggingafyrirtækjum þar sem þeir fá sömu lífeyrisgreiðslur og þeir sem ekki reykja en lifi miklu skemur. Parnership ætlar að borga reykingamönnum 30% hærri lífeyrsigreiðslur en hinum, þar sem þeir njóti greiðslnanna í mun styttri tíma.
Lífslíkur reykingamanns i Bretlandi eru taldar um sex til átta árum styttri en hins sem ekki reykir.
