Mánudagur - 11.2 2008 - 00:34 - Ummæli ()

Eric Clapton heldur tónleika í Egilshöll í ágúst

52048732.jpgGítarsnillingurinn Eric Clapton heldur tónleika með hljómsveit í Egilshöll föstudagskvöldið 8. ágúst í sumar.

Clapton hefur nokkrum sinnum komið til Íslands að veiða lax en aldrei tekið gítarinn með sér. Nú verður breyting á því. Tónleikarahaldararnir Kári Sturluson og Grímur Atlason hafa náð samningum um að halda tónleika fyrir um 10.000 gesti í Egilshöll. Þeir munu kynna fyrirkomulag á forsölu í næstu viku.

Tónleikarnir á Íslandi verða liður í Evróputónleikaferð í kjölfar útgáfu tvöföldu safnskífunnar Complete Clapton sem kom út í haust og spannar allan feril Claptons. Á tónleikunum verða tekin lög eins og Sunshine Of Your Love, White Room, Layla, I Shot the Sheriff, Knockin ´On Heaven´s Door, Cocaine, Wonderfull Tonight, It´s In The Way That You Use It og Tears In Heaven.

Eric Clapton er stofnun í tónlistarheiminum eftir rúmlega 40 ára feril. Hann er 18- faldur Grammy verðlaunahafi, þrívegis heiðraður af Rock and Roll Hall of Fame fyrir sólóferil sinn og aðild að hljómsveitunum Cream og Yardbirds. Hann hefur verið aðlaður af Bretadrottningu. Auk safnplötunnar Complete Clapton kom ævisaga kappans út sl. haust, „Clapton, The Autobiography“ heitir hún. Auk þess að sinna tónlistinni er helsta verkefni Claptons um þessar mundir rekstur meðferðarstofnunarinnar Crossroads á Antigua í Karíbahafi sem hann kom á fót fyrir vímuefnafíkla en Clapton glímdi sjálfur lengi við eiturlyfjafíkn.

—-

Heimasíða Eric Claptons.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar