Fimmtudagur - 14.2 2008 - 20:47 - Ummæli ()

RÚV á 12 vinsælustu þættina – er með 41,9% af áhorfi landsmanna

ruv.jpgRíkissjónvarpið á tólf vinsælustu sjónvarpsþættina í landinu samkvæmt nýrri könnun Capacent. Skjár einn á þáttinn í 13. sæti, RÚV þá í 14.-16. en vinsælasti þáttur Stöðvar 2 hreppir 17. sætið á listanum yfir þá 30 þætti sem landmenn horfa helst á.

Sjónvarpið mælist alls með 41,9% af heildarsjónvarpsáhorfi landsmanna, áskriftarstöðin Stöð 2 mælist með 28,7% en Skjár einn, sem sendir út ólæsta útsendingu, 14,6%.

Vinsælasti þátturinn var Laugardagslögin á RÚV með 54,7%. Áhorf en á Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna mældist 53% en 51,3% sáu Spaugstofuna. Kvöldfréttir RÚV eru með 37,5% uppsafnað áhorf yfir vikuna í 6. sæti, minna áhorf en þættirnir The Librarian, The Break Up, sem eru í 4. og 5. sæti. Kastljós er í 8. sæti með 36,8% áhorf.

Í 13. sæti er einokun RÚV loks rofin en þar situr bílaþátturinn Top Gear á Skjá einum með 30,8% áhorf. Fyrir neðan Taggart, endursýningu Gettu betur og þáttinn um Shaun the Sheep kemur vinsælasti þáttur Stöðvar 2, Americal Idol í 17. sæti með 27,2% áhorf. Fréttir Stöðvar 2 eru í 20. sæti með 24,7% áhorf yfir vikuna.

Listann í heild má sjá á heimasíðu Capacent. Engin önnur stöð en þessar þrjár koma þætti á lista yfir þá 30 vinsælustu og heldur ekki á lista yfir 30 vinsælustu þættina í aldurshópnum 12-49 ára en hjá þeim hópi á RÚV þættina í sætum 1-5, Skjár einn á þættina í sætum 6-8, RÚV í sætum 9 og 10 en American Idol er þar í 11. sæti. Alls á Skjár einn 9 þætti af topp 30 hjá 12-49 ára, RÚV á þar 18 þætti en Stöð 2 kemur aðeins Fréttum og Íslandi í dag inn á þann lista, auk Americal Idol.

Mælingin nú er hin fyrsta með nýrri aðferð, svokölluðum PPM mæli, sem þátttakendur í könnuninni ganga með á sér, og skráir hann áhorf þeirra með rafrænum hætti. Í fyrri könnunum var byggt á dagbókum sem þátttakendur héldu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar