Bjarni Benediktsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, telur að menn eigi að einbeita sér að þeim brýnu verkefnum í hagstjórn sem blasa við næstu 1-2 árin á forsendum íslensku krónunnar en að því loknu geti menn tekið umræðuna um aðild Íslands að ESB í alvöru.
Hann sagði að á Viðskiptaþingi í vikunni hefði umræða um einhliða upptöku evru verið afgreidd endanlega út af borðinu, að sínu mati. „Það er engin skynsemi í því að einangra einn þátt í Evrópusambandsaðild,“ sagði Bjarni. „Við eigum að taka allt með í reikninginn.“
Þessi ummæli lét Bjarni falla í þættinum Vikulokin á Rás 1 í morgun.
