Þetta gengur ekki Google!
Íslenska útgáfan af leitarsíðu Google, Google Ísland, jafn sparlega orðuð og hún er, birtist nú með einni meinlegri stafsetningarvillu og einni málvillu.
Á hnappnum „I´m feeling lucky“, sem alla tíð hefur staðið við hlið aðalleitahnapps síðunnar í klassísku ensku útgáfunni, stendur „Freysta gæfunnar“ í íslensku útgáfunni. Orðið „freista“ á ekki að skrifa með yfsiloni.
Á íslensku síðunni er líka gefinn valmöguleikinn „Leita á Vefur“ sem ætti frekar að vera „Leita á vefnum“.
Vakin var athygli á þessu á bloggsíðu Nordic eMarketing, optimizeyourweb.com, í síðustu viku. Starfsmaður vefsíðunnar segir þar að ábending um þetta hafi verið send á vefstjórn Google sem hafi ætlað að kippa þessu í liðinn eins fljótt og mögulegt væri. Íslenska Google-síðan er svona enn.
Annað sem vekur athygli á íslensku síðunni er að þar vantar tengil í fréttasíðu Google. Sjálfsagt myndu svo einhverjir líka gera athugasemd við það að þýða „My Account“, sem er tengill í svæði skráðra notenda, sem „Reikningurinn minn.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
