Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, væntir þess að nefnd sem vinnur að endurskoðun laga um happdrætti skoði einnig þær reglur sem gilda um pókerspil eins og aðrar reglur sem varða fjárhættuspil. Ráðherrann segist vonast til að nefndin komi til móts við þann gríðarlega áhuga sem er í þjóðfélaginu á því að spila þetta spil.
Umræði Björns féllu í svari hans við fyrirspurn sem Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, bar fram í tilefni af fréttum um þátttöku Birkis J. Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í pókermóti. Ellert sagði að það væri opinbert leyndarmál að póker væri spilaður til fjárhættu víða í þjóðfélaginu. Í sjónvarpi og á netinu sé auglýst hvernig megi taka þátt í póker og sérstakir sjónvarpsþættir sýndir frá mótum og með kennsl í spilinu. Ellert sagði að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefði lýst því yfir að hann telji ástæðu til að fara yfir reglurnar og þá væntanlega með það í huga að leyfa pókerspil en Ellert sagðist hins vegar vilja spyrja ráðherrann að því hvað hann og dómsmálayfirvöld ætluðu að aðhafast til að koma í veg fyrir þessa ólöglegu starfsemi.
Björn sagðist ekki vilja gefa yfirlýsingar um hvað væri löglegt eða ólöglegt en að nefndin, sem hann hefur falið að fara yfir og endurskoða lög um happdrætti þar sem félagasamtökum, líknarfélögum og Háskóla Íslands, eru veitt leyfi til að afla fjár með ýmsum fjárhættuspilum eins og lottói, spilakössum og happdrættum að skoða einnig þessi mál. Ráðherrann sagði að póker njúti vaxandi vinsælda og sé markaðssett á margvíslegan hátt og því telji hann rétt að nefndin sem endurskoðar lögin kanni möguleika á að setja reglur til að koma til móts við þann gríðarlega áhuga sem er á því að spila þetta spil meðal almennings.
