Miðvikudagur - 27.2 2008 - 08:03 - Ummæli ()

„Ljósmyndafyrirsætan“ lýsir eftir ráðherra: Eins og hryggbrotin mær, einn með sætabrauðið

img_8763.JPGGunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, lýsir eftir Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra, í grein í Morgunblaðinu í dag og segist hafa beðið eftir því í níu mánuði að ráðherrann kæmi í boðaða heimsókn sína á bæjarskrifstofurnar enda séu samgöngumál þar ofarlega á blaði. „Þeir eru ófáir morgnarnir sem ég hef setið einn að rúnstykkjunum og sætabrauðinu eins og hryggbrotin mær með þeim afleiðingum sem sjá má á holdafari ljósmyndafyrirsætu ársins,“ segir Gunnar í grein sinni.

„Ég ímynda mér að mikið sé að gera við jarðgangagröft á Vestfjörðum og Tröllaskaga þar sem vegakerfið verður meira og minna allt komið ofan í jörðina áður en varir þangað sem geislar sólar ná ekki til að blinda bílstjóra eða valda sortuæxlum. En stór og smá verkefni eru framundan á sviði samgangna í Kópavogi líka, en þeim hefur lítið verið sinnt undanfarin ár. Til dæmis er því spáð að árið 2024 verði umferðarþungi á Reykjanesbraut yfir Fífuhvammsveg eins og í Ártúnsbrekku í dag.“

„Hvar ertu, Kristján? Síðast þegar ég gáði bjóstu hér í Kópavogi og ætti ekki að verða skotaskuld úr því að koma við hérna á leið í vinnuna. Nóg er um að spjalla. Og vínarbrauðið er gott,“ segir bæjarstjórinn í Kópavogi, Gunnar I. Birgisson.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar