Fimmtudagur - 28.2 2008 - 12:20 - Ummæli ()

Laugavegshús draga úr trúverðugleika borgarinnar sem skipulagsvalds

dsc00003.jpegÓskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að vinnubrögð borgarstjóra og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins við kaup á húsum við Laugaveg hafi dregið úr trúverðugleika borgarinnar sem skipulgsvalds. Með þeim sé virðingu fyrir almannafé og vandaðri stjórnsýslu gefið langt nef. Vönduð vinna hafi verið gerð að engu og verði á óbyggðum fermetrum hleypt upp.

Óskar lagði fram bókun vegna málsins á borgarráðsfundi í morgun. Þar segir hann: „Í svari skipulags- og byggingarsviðs kemur fram að leiðarljósið í deiliskipulagi Laugavegsreita var að Laugavegur  sé aðalverslunargata Reykjavíkur, þar sem sjónarmið uppbyggingar og varðveislu haldast í hendur.  Í stað þess að nýta alla þá vönduðu vinnu sem borgarstarfsmenn, borgarfulltrúar og húsverndarsérfræðingar hafa lagt til og hér hefur verið lögð fram, hefur Sjálfstæðisflokkurinn og borgarstjóri gert þessa vinnu að engu og hleypt upp verði á óbyggðum fermetrum í miðborg Reykjavíkur.  Kaupin á Laugavegi 4 og 6 og Skólavörðustíg 1A hafa dregið úr trúverðugleika borgarinnar sem skipulagsvalds, hafa sett skipulag Laugavegsreita í uppnám og hleypt upp verði á gömlum húsum í miðborginni.  Þessi vinnubrögð eru fáheyrð þar sem virðing fyrir almannafé og vandaðri stjórnsýslu er gefið langt nef.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar