Benny Shanon, ísraelskur vísindamaður við Hebrew-háskólann í Jerúsalem, hefur komist að því að Móse hafi verið útúrdópaður þegar hann tók við skilaboðum Guðs um boðorðin tíu á Sinai-fjalli.
Hann skrifar um þetta grein í the Time and Mind journal of philosophy og heldur því fram að Móse hafi verið „hátt uppi“ af örvandi lyfjum.
„Sagan af Móse á fjallinu er annaðhvort saga af yfirnáttúrulegu atviki, sem ég trúi ekki á, eða að hann var á örvandi lyfjum. Hann var örugglega líka dópaður þegar hann sá logandi runnann,“ segir Shannon sem viðurkennir að hafa sjálfur fiktað við dóp.
Biblían talar um að fólk „sjái hljóð“ sem er dæmigert fyrir menn á örvandi lyfjum,“ segir hann og bendir á seremóníur í Amazon þar sem fólk fær örvandi lyf til að „sjá tónlist“.
„Ég upplifði þetta sjálfur í Amazon þegar ég tók lyf gert ur plöntunni ayahuasca, sem er afar áhrifamikið, og ég varð fyrir allskyns andlegum upplifunum.“
Hann segir að áhrif ayahuasca séu sambærileg við lyf sem eru gerð úr acacia-trjám sem eru margoft nefnd í Biblíunni.
