Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að herða eftirlit með erlendum listamönnum í landinu í kjölfar ákalls Bjarkar Guðmundsdóttur um sjálfstæði Tíbets á tónleikum hennar í Shanghai á sunnudagskvöld.
„Björk braut kínversk lög og særði tilfiningar fólks,“ segir í tilkynningu stjórnvalda sem birtist á síðu menningarmálaráðuneytis Kína í dag.
Björk tileinkaði Tíbet síðasta lag tónleikanna, „Declare Independence“ (Lýsið yfir sjálfstæði) og kallaði „Tíbet, Tíbet“ nokkrum sinnum og „Raise the flag!“ (Reisið fánann), eins og sést í YouTube myndbrotum frá tónleikunum sem nú eru komin fram. (sjá hér að neðan). Um 3.000 manns sóttu tónleikana, um helmingurinn Kínverjar.
„Við munum herða enn frekar eftirlit með erlendum listamönnum sem koma fram í Kína til þess að koma í veg fyrir að svona lagað gerist í framtíðinni. Við munum aldrei líða tilraunir til að aðskilja Tíbet frá Kína og listamenn sem hvetja til þess verða ekki lengur velkomnir,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir líka að sumir listamenn hafi „af ráðnum hug snúið almennri sýningu upp í pólitíska samkomu, sem hafi ekki aðeins verið brot á kínverskum lögum heldur hafi það líka sært tilfinningar kínverskra áhorfenda.“
„Það sem Björk sagði í Sjanghai hefur kallað fram sterka óvild meðal almennings í Kína,“ segir ennfremur.
Björk virðist þó ekki hafa verið sett á svartan lista stjórnvalda í Kína. Haft er eftir talsmanni menningarmálaráðuneytisins í AFP frétt frá Shanghai í dag að „ef Börk héldi áfram að hegða sér svona, þá myndum við velta því fyrir okkur að leyfa henni ekki að koma fram í Kína framvegis.“
Annað myndband af tónleikunum hér.
