Miðvikudagur - 26.3 2008 - 12:48 - Ummæli ()

Höfuðkúpan er af sjúklingi á Kleppi – var gefin lækni til „rannsókna og lærdóms“

kleppurHöfuðkúpan sem fannst á víðavangi við Meðalfellsvatn í Kjós um páskana er af sjúklingi á Kleppi, sem lést á þriðja áratugnum. Föður Sverris Ólafssonar myndlistarmanns áskotnaðist beinagrindin af manninum á þriðja áratug síðustu aldar.

DV greinir frá þessu í dag. Sjúklingurinn gekk undir nafninu Björn Grillir, og var umkomulaus sjúklingur á Kleppi, segir Sverrir Ólafsson í samtali við blaðið. Faðir hans, Ólafur Páll Jónsson, eignaðist beinagrindina af Birni Grilli þegar hann var við læknisnám „til rannsókna og lærdóms“ og segir Sverrir að á þeim tíma hafi verið algengt að líkamar sjúklinga á Kleppi hafi verið „nýttir til læknisvísinda.“

DV segir að síðan hafi beinagrindin verið geymd í kassa heima hjá Ólafi Páli en að hann hafi notað höfuðskelina undir bréfaklemmur. Sverrir segist hafa sofið með kassann með beinagrindinni undir rúmi í mörg ár en hann hafi einnig notað hana um tíma sem sælgætisskál.Síðan endaði skelin í kassa sem geymdur var hjá tengdamóður sonar Sverris í hjólhýsi við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar var höfuðskelin – sem læknar höfðu sagað af líki Björns Grillis við krufningu – notuð sem öskubakki. Þegar óveður splundraði hjólhýsinu um áramót fauk höfuðskelin á braut og var týnd þar til maður á fjórhjóli ók fram á hana á víðavangi um páskana.

Í DV kemur fram að lögreglan segi að eðlileg svör séu fengin á tilvist höfuðskeljarinnar og að málið sé ekki rannsakað sem sakamál.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar