Mánudagur - 14.4 2008 - 11:52 - Ummæli ()

12-49 ára Íslendingar: Nær fjórum sinnum meiri hlustun á FM en Rás1

radioHlustun 12-49 ára á Bylgjuna er meiri en samanlögð hlustun þessa aldurshóps á báðar rásir Ríkisútvarpsins. Útvarpsstöðin FM 957 er með nær fjórum sinnum meiri hlustun hjá 12-49 ára Íslendingum en Rás 1. Rás 1 hefur einungis 4,7% hlutdeild í hlustun 12-49 ára Íslendinga samkvæmt mælingum Capacent í síðustu viku.

Að meðaltali hlustaði hver 12-49 ára á Rás 1 í 34,2 mínútur 1 í vikunni 31. mars til 6 apríl. Hjá 12-80 ára er meðalhlustunin á sömu rás hins vegar 167,2 mínútur – þannig að viðbót 50-80 ára hlustenda nægir til að fimmfalda meðalhlustunina. Hjá12-80 ára er hlutdeild Rásar 1 hins vegar 18,2% í útvarpshlustun, hjá þeim hópi hefur Rás 2 forskot með 35,3% og 323,5 mínútna meðalhlustun en hlutdeild Bylgjunnar í útvarpshlustun 12-80 ára er 31,9% og að meðaltali hlustar hver í 292,5 mínútur á Bylgjuna – hálfri klukkustund minna en á Rás 2.

Ef aðeins er horft á draumamarkhóp auglýsenda – 12-49 ára – er hlutdeild Rásar 2 hins vegar 29,3% og meðalhlustun í mínútum 212,3 mínútur eða um það bil 2/3 af þeirri meðalhlustun sem mælist þegar fimmtugir og eldri eru með í mælingunni.  Bylgjan hefur 42,6% hlutdeild í útvarpslustun 12-49 ára Íslendinga, sem er meiri hlutdeild en útvarpsstöðvar RÚV ná hjá nokkrum hópi. Meðalhlustun 12-49 ára á Bylgjuna er 308,8 mínútur í viku.

Útvarpsstöðin FM 957 hefur 9,9% hlutdeild í útvarpshlustun 12-80 ára og er meðaltalshlustun þess hóps 91,1 mínúta. Hjá 12-49 ára er FM hins vegar með 16,9% hlustun, – nær fjórfalda hlutdeild Rásar 1, og að meðaltali hlustar sá aldurshópur á FM 957 í 122,2 mínútur á hverri viku.

Myndin hér að neðan er af vef Capacent og sýnir þær upplýsingar sem þar eru birtar um útvarpshlustun í fyrri viku.

image_cropped.JPG


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar