eyjan.is

Viðskipti Fimmtudagur 17.04.2008 - 14:03 - Ummæli ()

Launahæsti stjórnandi vogunarsjóðs með milljarð á dag árið 2007

john-paulson.jpgJohn Paulson, forstjóri vogunarsjóðsins Paulson & Co., þénaði um 3,7 milljarða dollara á árinu 2007, samkvæmt fjármálatímaritinu Alpha Magazine.

Tímaritið birti í gær lista yfir tíu hæst launuðu stjórnendur vogunarsjóðanna. Í öðru og þriðja sæti á eftir Paulson koma George Soros hjá  Soros Fund Management, sem var með 2,9 milljarða í árslaun og James Simons, hjá  Renaissance Technologies Corp. með 2,8 milljarða.

Jafnvel á Wall Street þar sem menn eru vanir himinháum launatölum standa menn gapandi af undrun yfir þessum ótrúlegu tekjum, að sögn bandarískra fjölmiðla.

Paulson græddi einkum á því sem fjármálakerfi Vestulanda í heild hefur tapað mestu á, bandarískum húsnæðislánum. Hann veðjaði rétt, tók skortstöðu á bandarískum húsnæðislánabréfum, og vann. Árangur hans þykir þeim mun merkilegri að ekki eru nema tvö ár síðan hann byrjaði að stýra vogunarsjóði með eignum upp á samtals 6 milljarða bandaríkjadala. Eignir sjóðsins nema nú 28 milljörðum dala, hafa næstum fimmfaldast.

Árstekjur Paulsons í fyrra svara til um 275 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Það samsvarar um 60% af tekjum islenska ríkisins í fyrra. Kaupið hans miðað við átta stunda vinnudag fimm daga vikunnar er þannig um 133 milljónir króna á tímann, rúmlega einn miljarður króna á dag.

Samanlögð árslaun 50 tekjuhæstu stjórnendanna námu alls 29 milljörðum dala, eða 2.175 milljörðum króna – hátt í fimmfaldar tekjur ríkissjóðs Íslands árið 2007.

Listi Alpha Magazin yfir tekjuhæstu stjórnendur vogunarsjóða 2007

1 John Paulson, Paulson & Co., $3,7 milljarðar
2 George Soros, Soros Fund Management, $2,9 milljarðar
3 James Simons, Renaissance Technologies Corp., $2,8 milljarðar
4 Philip Falcone, Harbinger Capital Partners, $1,7 milljarðar
5 Kenneth Griffin, Citadel Investment Group, $1,5 milljarðar
6 Steven Cohen, SAC Capital Advisors, $900 milljónir
7 Timothy Barakett, Atticus Capital, $750 milljónir
8 Stephen Mandel Jr., Lone Pine Capital, $710 milljónir
9 John Griffin, Blue Ridge Capital, $625 milljónir
10 Ole Andreas Halvorsen, Viking Global Investors, $520 milljónir

Enginn kona er á listanum yfir 50 tekjuhæstu stjórnendur vogunarsjóða. Andreas Halvorsen er 47 ára gamall Norðmaður (á mynd hér að neðan).

ole_andreas_halvorsen.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is