eyjan.is

Mánudagur 28.04.2008 - 11:34 - Ummæli ()

Ráðuneyti og ASÍ semja um fjölgun verðkannana

bjorgvin.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, fundaði í morgun með Grétari Þorsteinssyni, forseta Alþýðusambands Íslands, Tryggva Axelssyni, forstjóra Neytendastofu, og Jóhannesi Gunnarssyni, formanni Neytendasamtakanna,  um aðgerðir til þess að stemma stigu við verðhækkunum og draga úr verðbólguhraða. Einnig skrifuðu ráðherra og ASÍ undir samning um framkvæmd verðkannana.

Ríkisstjórin hefur samþykkt að setja fjórar milljónir króna í aðgerðir til þess að vinna gegn verðhækkunum, m.a með fyrrgreindum samningi við hagdeild ASÍ. Einnig mun Neytendastofa fara í sérstakt átak í eftirliti með verðmerkingum og endurskoða þær reglur sem gilda um verðmerkingar. Þá verður skipaður sérstakur starfshópur til að  endurskoða reglur um netverslun, ráðist verður í átak til að hvetja neytendur til að fylgjast betur með verðlagi og fleira.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is