Jafnréttisbaráttan heldur áfram og sænska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að karlarnir á gangbrautarljósunum verði ekki síður kerlingar í framtíðinni.
Ákvörðunin var tekin eftir að nokkur sveitarfélög höfðu svikist um að hafa bæði kerlingar og karla á gangbrautarljósunum þrátt fyrir tilmæli stjórnarinnar þar um.
Hin 1. október verður sænska Umferðarstofan að hafa hannað ný tákn á gangbrautarljósin og í lok árs munu sænskir vegfarendur sjá ný tákn, Fru Garman og Herr Garrman, sem leiðbeina þeim í umferðinni.
Það er því trúlegt að hið „sívinsæla“ sænska dægurlag, „Gubbe, gubbe röd, varför blir du aldrig grön“ verði lítið spilað í framtíðinni, ef það verður ekki beinlínis bannað.
