Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstóri og oddviti borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, sendi rétt í þessu frá sér yfirlýsingu um að hann víki þegar í stað sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við og verði næsti borgarstjóri í Reykjavík. Borgarstjórnarflokkurinn hefur samþykkt þetta.
Yfirlýsing Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar fer hér á eftir:
„Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins féllst í dag á tillögu mína um að Hanna Birna Kristjánsdóttir taki við af mér sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sú breyting tekur gildi þegar í stað, en að loknu sumarleyfi tekur Hanna Birna við formennsku í borgarráði en ég við embætti forseta borgarstjórnar og starfa áfram að hagsmunamálum borgarbúa og stefnumálum Sjálfstæðisflokksins.
Í lok kjörtímabilsins árið 2010 hef ég unnið fyrir Reykvíkinga í 28 ár eða tæpan starfsaldur. Eins og ég hef lýst yfir áður mun ég ekki gefa kost á mér til forystu í borgarmálum eftir það. Í ljósi þess og til að eyða allri óvissu tel ég eðlilegt að Hanna Birna, sem var í 2. sæti framboðslistans í kosningunum 2006, taki við störfum oddvita og óska ég henni velfarnaðar í því mikilvæga hlutverki.
Virðingarfyllst,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson“
