eyjan.is

Mánudagur 16.06.2008 - 15:12 - Ummæli ()

Annar ísbjörn mættur á Skaga – Ekki drepa hann, segja lesendur

bjorn.JPGÍsbjörn dvelur nú rólegur í gjótu í klettabelti nærri æðarvarpi í um 300 metra fjarlægð frá bænum Hrauni á Skaga. Þetta er annar hvítabjörninn sem kemur til landsins á fáeinum dögum. Sérfræðingar frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn eru á leið til landsins og ætla að reyna að svæfa dýrið og flytja á burt.

Ekki er talin hætta af birninum sem stendur, en vopnaðir menn eru komnir á staðinn í öryggisskyni og vegir í nágrenninu eru lokaðir almennri umferð, samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins.

isbjorn-hraun2.jpgBjörgvin G. Sigurðsson, settur umhverfisráðherra, sagði í viðtali á Rás 2 uppúr kl. 16, að það sé vilji til að þyrma dýrinu, sé þess nokkur kostur, en fyrsta skylda sé þó að vernda mannslíf. Hann segir að verið sé að flytja svefnlyf á staðinn.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra er stödd erlendis. Björgvin segir menn hafa mjög dregið lærdóm af reynslunni af bjarndýrinu sem fellt var á Þverárfjalli um daginn. Endanleg ákvörðun er í höndum lögreglu, að sögn Björgvins. Hann segir viðbrögð nú eru öll yfirvegaðri en fyrir 12 dögum og betur að öllu staðið. En framundan sé stór og viðamikil aðgerð, sem ekki er víst hvernig fer.

Björgvin var í sambandi við ráðuneytisstjóra og forstjóra Umhverfisstofnunar og yfirdýralækni vegna þessarar óvæntu heimsóknar. Fljótlega var svo ákveðið að fá sérfræðinga frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn á staðinn. Þeir munu koma að Hrauni um miðjan dag á morgun með búnað til þess að svæfa dýrið og búr.

Íbúar á Hrauni og næstu bæjum halda sig innandyra og eru ekki í hættu. Beðið er eftir nánari fyrirmælum umhverfisyfirvalda og leitað er allra leiða svo hægt verði að ná dýrinu lifandi að sögn lögreglu. Egill Steingrímsson hérðasdýralæknir á Blöndósi segir hægt að svæfa dýrið og ná því lifandi, sé vilji til þess. Egill segir von til þess að dýrið haldist rólegt í æðarvarpinu meðan það getur sótt sér egg

Halldór Runólfsson yfirdýralæknir segir þetta ekki einfalt mál. Ekki sé bara nóg að svæfa dýrið heldur þurfi að vera til staðar áætlun um framhaldið.

10 ára dóttir hjónanna á Hrauni sá fyrst til bjarndýrsins þegar hún elti hund sinn út að æðarvarpinu um klukkan hálf eitt í dag, að sögn RÚV. Foreldrar hennar létu lögreglu vita. Björninn er sagður svipaður að stærð og sá sem gekk á land á þessum slóðum fyrir um tveimur vikum. Lögreglan hefur lokað veginum um svæðið og hefur beðið fólk um að vera ekki á ferð um svæðið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is