Fimmtudagur - 3.7 2008 - 12:54 - Ummæli ()

Davíð Oddsson: Voðalega óhollt að vera með mig á heilanum

davidodds.jpgDavíð Oddsson formaður bankastjórnar Seðlabankans gerði grein fyrir ákvörðun bankans um óbreytta 15,5% stýrivexti á fundi með fréttamönnum í morgun.

Ein spurninganna sem Davíð fékk á fundinum, frá Sindra Sindrasyni, fréttamannai Markaðarins á Stöð 2, var um áhrif Davíðs sjálfs við enahagsstjórnina.

Sindri spurði: „Margir segja sem örugglega er rétt að þú hafi átt stóran þátt í því að búa fyrirtækjum á Íslandi þetta góða umhverfi. Þeim fer  fjölgandi sem segja að þú eigir líka stóran þátt í því að menn séu bara að detta upp fyrir herna og þú sért bara að eyðileggja efnahagslífið hérna og Seðlabankinn. Hvað viltu segja við fólk sem talar svona?

Davíð: Ég held reyndar að fólk eigi ekki að persónugera hlutina svona mikið, í hvoruga áttina. Mér finnst að ég sé ennþá töluvert fyrirferðamikill í hausnum á sumum og ég skil það ekki raunar. Ég hef reyndar áður sagt að það séu sumir menn sem hafa mig á heilanum og ég held að það sé voðalega óhollt. Ég get ekki hugsað mér að hafa mig á heilanum. En það er óþarfi að persónugera þetta með þessum hætti, algjörlega. Ég vil taka fram til dæmis, að hér til dæmis innan bankans vinna menn hlutina með nákvæmlega sama hætti og áður en ég kom hér í bankann, með faglegum ábyrgum hætti og af mikilli samviskusemi. Og síðan koma bankastjórarnir að lokum að málinu og frá þvæi ég kom hér í bankann hefur ekki verið ágreiningur milli okkar í bankastjórninni.

Þannig að það er svolítið gamaldags að vera alltaf að vera að burðast með svona kall eins og mig hvað þetta varðar í þessum samanburði. Bankinn kemur fram sem ein heild og það er enginn ágreiningur innan bankastjórnarinnar. Við vinnum þetta af bestu samvisku vegna þeirra verkefna sem við höfum. Við teljum að á endanum skipti það mestu máli að ná verðbólgunni niður, líka fyrir fyrirtækin og aðra slíka aðila.“


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar