Fimmtudagur - 3.7 2008 - 18:02 - Ummæli ()

Hitabylgja á leiðinni

spakort4juli.jpgUppfært – Veðurstofan spáir hitabylgju víða um land um helgina og gerir ráð fyrir að á mörgum stöðum fari hitastigið upp fyrir 25 gráður. Á hádegi á morgun spáir Veðurstofan þannig 26 stiga hita á Austurlandi.

Búist er við að heitt loft streymi til landsins frá meginlandi Evrópu og að notalegheitin byrja fyrir alvöru seinni partinn í dag og verði komin um allt land á sunnudag og mánudag og jafnvel áfram. Spáin hjá Veðurstofu Íslands fyrir hlýindin næstu lítur nú svona út.

Næsta sólarhring:
Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Dálítil rigning eða súld með köflum austantil en þykknar upp um landið vestanvert síðdegis og dálítil væta með köflum þar í kvöld. Hæg suðlæg eða breytileg átt á morgun og bjartviðri en stöku skúrir síðdegis. Hiti 10 til 22 stig, svalast með austurströndinni en hlýjast vestanlands.
Spá gerð: 04.07.2008 13:23. Gildir til: 05.07.2008 18:00.

Á sunnudag og mánudag:
Hægviðri eða hafgola. Yfirleitt skýjað við norður- og austurströndina og sums staðar þoka, en annars bjartviðri. Hiti 8 til 22 stig, svalast í þokunni en hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Áframhaldandi góðviðri með hlýindum og björtu veðri víða um land. Hætt við þokubökkum úti við sjóinn.

Á fimmtudag:
Hæg vestlæg átt og skýjað að mestu og sums staðar skúrir. Hiti 8 til 18 stig.
Spá gerð: 04.07.2008 08:28. Gildir til: 11.07.2008 12:00.

Vefsíða Veðurstofu Íslands hér.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar