Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir í bréfi til þeirra, sem leitað hafa til utanríkisráðuneytisins vegna máls keníska flóttamannsins sem vísað var úr landi án þess að taka fyrir umsókn hans um pólitískt hæli, að hún hafi ekki vitað af málinu fyrr en hún heyrði um það í fréttum.
Hún krefst þess að Dómsmálaráðuneytið og Útlendingastofnun rökstyðji ákvörðunina. Í bréfi utanríkisráðherra segir:
„Því miður vissi ég ekkert af þessu máli fyrr en það spurðist út í gegnum fréttir í gærkvöldi. Málið heyrir alfarið undir Útlendingastofnun og dómsmálaráðuneytið. Hvernig sem á því stendur hefur mál mannsins aldrei verið tekið upp við mig í gegnum flokkinn eða Alþingi, né heldur við mitt starfsfólk hér í utanríkisráðuneytinu. Útlendingastofnun og dómsmálaráðuneytið verða að rökstyðja sínar aðgerðir.
Mér er umhugað um málið. Við vitum að samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu er Ítalía er sem upphaflegt móttökuríki skuldbundið til að veita honum skjól ef hann er í hættu,“ segir í bréfinu. Sagt er frá bréfasendingum vegna málsins á bloggsíðu Andrésar Jónssonar hér.
Maðurinn, Paul Ramses, starfaði að sögn fréttastofu Útvarps um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að. Hann tók þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí í Kenía í desember í fyrra en náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist um líf sitt og flúði því land í janúar síðastliðinn. Hann kom til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður. Ástæðan er að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði í framhaldi fyrir ABC barnahjálp í Kenía.
Paul tók þátt í að stofna skóla í Naíróbí með Íslendingum, en það verkefni er meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu. Í mars var farið fram á að stjórnvöld tækju málið fyrir. Fram að þessu hefur ekkert svar borist.
Katrín Theódórsdóttir héraðsdómslögmaður segir Útlendingastofnun brjóta á rétti hans. Lögreglan hafi komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar eigi hann að sitja í nótt og svo verði hann sendur út í fyrramálið. Ástæðan er að Paul millilenti á Ítalíu á leið sinni til landsins, og stjórnvöldum er því heimilt að senda hann þangað og láta ítölsk stjórnvöld fjalla um málið.
Katrín segir að Paul eigi konu og 3 vikna son sem séu hér á landi líka og með þessari ákvörðun verði fjölskyldunni stíað í sundur.
Tveir karlmenn mótmæltu meðferðinni á Ramses í morgun með því að hlaupa inn að flugbraut á Keflavíkurflugvelli.
146
98