Föstudagur - 11.7 2008 - 14:44 - Ummæli ()

Vísindaleg rannsókn: Konur taka sterka og stjórnsama karlmenn fram yfir mjúka manninn

brad.jpgVísindamenn við háskólann í Nýju Mexíkó hafa komist að því að konur vilja stjórnsama karlmenn. Góðu strákarnir koma heldur illa út úr þessari könnun.

Vísindamennirnir rannsökuðu 200 karlmenn, persónuleika þeirra og hvernig þeim gekk í kvennamálum og niðurstaðan varð ótvíræð; slæmir strákar voru vinsælastir.

„Vinsælustu strákarnir eru þeir sem eru opnir, fullir sjálfstrausts og eiga auðvelt með að komast í samband við stelpur, jafnvel þó þeir hafi slæmt orð á sér og komi almennt ekki vel fram við kærusturnar sínar.

Þeir eru fljótir að slíta samböndum og eru ekki bestu pabba-kandidatarnir, en engu að síður vinsælastir,“ segir Peter Jonasson, einn vísindamannanna, í viðtali við tímaritið New Scientist.

karlmenn.jpg„Meðan mjúki maðurinn brettir upp ermarnar og setur á sig gúmmíhanska og svuntu stinga stelpurnar af með mótorhjólatöffurunum.“

Í frétt á 180grader kemur fram að þessi vitneskja sé ekki ný af nálinni en hafi nú í fyrsta skipti verið sönnuð af vísindamönnum.

„Það kemur ekki á óvart að konur vilji síður mjúka menn,“ segir Jonasson.

„Þannig hefur það verið í gegnum aldirnar og tengist þróun mannsins. Hefðin var að karlmaðurinn verndaði fjölskylduna og heimilið gegn óvinum og þess vegna er það sterkt í undirmeðvitund konunnar að vilja sterkan og ákveðinn mann.

Að hann sé góður við börnin og hjálpi til á heimilinu varð ekki mikilvægt fyrr en á síðustu öld.“

Myndin af mótorhjólatöffaranum er af Brad Pitt sem ku hafa sameinað þetta tvennt, að vera hið mesta karlmenni og jafnframt mjúkur heima fyrir.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar