Sunnudagur - 20.7 2008 - 18:03 - Ummæli ()

Hollensk kona sturtaði óvart 900 evrum niður um klósettið

euro_banknotes.jpgHollensk kona í bænum Oldenzaal sturtaði óvart 900 evrum niður um klósettið. Konan hafði einmitt verið í bankanum og tekið út peningana sem hún ætlaði að nota í sumarfríinu sínu.

Hún var í spreng þegar hún kom heim en þar sem hún sat á klósettinu féllu níu 100 evru seðlar úr rassvasa hennar í klósettið.
Hún uppgötvaði ekki hvað hafði gerst fyrr en eftir að hún sturtaði niður.

Konan sneri sér í örvæntingu til pípulagningarmanna í þorpinu, sem sneru sér að því í hvelli að ná peningunum.

Þeir sendu örmyndavél niður í klóakrörið og tókst að ná peningunum eftir nokkra stund.

Konan er nú komin í sumarfrí með aurana sína – eftir að hafa þurrkað þá að sjálfsögðu.


Ummæli:

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

Fréttir

Facebook

Facebook vinir

Facebook síða Twitter síða RSS straumar