Mánudagur - 28.7 2008 - 09:24 - Ummæli ()

Söguleg bryggja brennur í Somerset í Englandi

eldur-nota-lika.jpgMikill eldur geisar nú á hinni sögulegu bryggju Grand Pier í Weston-super-Mare í Somerset.
Engan hefur sakað en slökkviliðslmenn berjast við eldinn sem kviknaði klukkan sjö í morgn að breskum tíma.
Svartan reyk leggur frá eldinum sem sést alla leið til Cardiff.

Nigel Dando, fréttamaður á BBC, segir bryggjuna hafa hrunið og að engu verði bjargað.

Bryggjan var nýlega keypt fyrir milljónir punda og gerð upp. Hún er hluti af ímynd sumarleyfisstaðarins Weston-super-Mare.
Brenner-fjölskyldan var eigandi bryggjunnar í þrjár kynslóðir, en bryggjan hefur aðeins þrisvar skipt um eigendur síðan hún var opnuð árið 1904.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar