Allt stefnir í að dagurinn í dag verði sá heitasti á árinu. Hitamet hafa fallið víða á Suðurlandi í dag. Hæst hefur hitinn farið í 31,7 gráður í Grímsnesi. Það er rúmri gráðu meira en hæsti hiti sem áður hefur mælst á Íslandi, 30,5 á Teigarhorni í júní 1939.
Hitametið féll í Reykjavík síðdegis þegar hiti mældist þar yfir 26 gráður. Eldra metið í Reykjavík er frá 11. ágúst 2004 er hitabylgja var á landinu og hiti mældist í höfuðborginni rúm 25 gráður. Á Hvolsvelli og Vestmannaeyjum hefur hitinn mælst um 30 stig og um allt land er milt og gott hitabeltislofslag og steikingshiti.
Fólk nýtur lífsins um allt land, fær sér ís og kalda drykki. Heyrst hefur að hitinn hafi á Suðurlandi orðið það mikill að fólk hafi ekkert annað getað en fara næstum úr hverri spjör og buslað í köldu vatni.
Spáð er bongóblíðu og notalegu veðri víða um land næstu dagana og lofar veðrið góðu fyrir verslunarmannahelgina, vinsælustu ferðahelgi ársins.
